Bíllinn verður eins og nýr.

Alþrif, djúphreinsun og handbón í Goðanesi á Akureyri. Við notum heita gufu og hreinsum líka teppi, sófa og dýnur.

Svartur bíll í dimmum bílskúr
mæla með okkur á Facebook
94%
mæla með okkur á Facebook
umsagnir á Facebook
34
umsagnir á Facebook
fylgjendur
1,5 þús.
fylgjendur
603 Akureyri
Goðanes 8–10
603 Akureyri

Það sem við þrífum

Bílar eru okkar sérgrein, en gufan nýtist líka vel á heimilinu.

Bíll þakinn froðu í þvotti

Bíllinn

  • Alþrif og handbón

    Þvottur að utan, þrif að innan og handbón sem ver lakkið.

  • Deluxe hreinsun og handbón

    Vönduðustu þrifin okkar. Hurðaföls, bensínlok, mælaborð og allt plast er tekið í gegn.

  • Djúphreinsun

    Sæti, teppi og skott djúphreinsuð með gufu.

  • Leðurhreinsun og næring

    Leðrið er hreinsað og nært svo það haldist mjúkt.

  • Mótorhreinsun

    Vélarrýmið er hreinsað vandlega.

Sófi hreinsaður með gufu

Heimilið

  • Teppi og mottur

    Djúphreinsun sem nær alla leið niður í botninn.

  • Sófar og stólar

    Áklæðið er hreinsað með heitri gufu.

  • Dýnur

    Djúphreinsun með gufu.

  • Barnavagnar

    Blettir og óhreinindi hreinsuð úr vagninum.

  • Flísar

    Gufuhreinsun og bónun á náttúrusteinsflísum.

Verðið fer eftir stærð og ástandi. Hafðu samband og við sendum þér tilboð. Fá tilboð

Af hverju gufa?

Kemst þangað sem tuskan kemst ekki

Heit gufan kemst inn í sauma, glufur og loftristar og losar óhreinindin þaðan.

Blettir og lykt

Gufan losar bletti og óhreinindi úr áklæði og teppum og vinnur á vondri lykt.

Hentar á flest efni

Áklæði, plast, leður, teppi og flísar.

Bón borið á lakk með bónvélMælaborð hreinsað með burstaStýri þurrkað með klútDekk skrúbbað með bursta

94%

mæla með Gufuþrifum Akureyrar á Facebook, samkvæmt 34 umsögnum.

Sjá allar umsagnir á Facebook

Það sem viðskiptavinir segja

Hef farið nokkrum sinnum með bíla hingað, og vá! Þessi þrif og þjónusta eru í sér flokki. Hver einasti blettur glansandi hreinn, hurðaföls, inn í bensínloki. Ég fer allavega aldrei með mína bíla annað!
Jóhann G.Facebook
Bíllinn minn fór í alþrif ásamt djúphreinsun á sætum. Hann er eins og nýr. Frábær þjónusta og vönduð vinnubrögð.
Kristín Björk I.Facebook
Mæli 150% með þessum. Komu heim og sóttu barnavagninn minn og skiluðu honum heim að dyrum tveimur dögum síðar og hann er eins og nýr.
Signa Hrönn S.Facebook
Keypti þrif á teppum, sætum og skotti. Bíllinn er óþekkjanlegur. Bestu þakkir fyrir vel unnið verk!
Tryggvi H.Facebook
Topp þjónusta, mjög vönduð vinnubrögð og allt stóðst. Mæli eindregið með.
Auðunn N.Facebook
Frábært, gamli bíllinn varð eins og nýr. Meiriháttar vinnubrögð og þjónusta. Takk!
Helga K.Facebook
Fljót og góð þjónusta á sanngjörnu verði.
Sigurfinnur F.Facebook
Bestu þrif sem ég hef fengið á bílinn minn. Pottþétt bestu þrifin í bænum.
Íris Björk H.Facebook
Takk fyrir afbragðs vinnubrögð á gufuhreinsun og bónun á náttúruflísum hjá okkur. Þvílíkur munur!
Jónheiður K.Facebook
Klárlega besti þvottur á bíl sem völ er á í dag!
Anna Margrét S.Facebook
Bíllinn minn fór í alþrif og djúphreinsun á sætum og er eins og nýr. Ég mæli hiklaust með þessu fyrirtæki.
Matthildur Björg G.Facebook
Frábærlega vel gert. Bíllinn er eins og nýr. Allt tekið hátt og lágt.
Kolfinna H.Facebook
Frábær vinnubrögð og sanngjarnt verð.
Sigtryggur Veigar H.Facebook
Frábær þjónusta. Bíllinn eins og glænýr að utan og innan.
Linda Björk J.Facebook

Hvað viltu láta þrífa?

Veldu það sem á við og við setjum beiðnina saman fyrir þig.

Beiðnin þín

Veldu þjónustu hér fyrir ofan.

Eða hringdu beint:

857 4271

Gott að vita: tæmdu bílinn af lausamunum áður en þú kemur með hann.